Heyriði ég var að kaupa mér Battlefield 1942 fyrir nokkrum dögum en kann ekki alveg á hann! Og eftirfarandi er að angra mig þannig að endilega hjálpið mér.

*Ég get ekki byrjað í almennilegum “Single player: Campaign Play”. Ég vel alltaf easy, normal o.s.fv. og stilli allt og ýti svo á start og download-a “Battle eitthvað” sem tekur sinn tíma en svo þegar ég byrja er allt svona blátt og eitthvað og ég get bara ekki byrjað í alvöru leik. En segið mér bara hvað ég á að gera til þess að byrja í “Campaign Play”.


*Það sem er líka að angra mig er það að ég get ekki byrjað í “Instant Battle”, það byrjar alltaf að download-ast en klárast aldrei!

*Og þegar ég ætla að join-a einhvern server á netinu þá kemur alltaf eitthvað “ERROR blablabla…”

Ok. Ég veit að ég er svolítill auli fyrir að geta þetta ekki en gæti þetta verið út af því að ég gat ekki Register-að í byrjun út af því að þá kom eitthvað “Þú verður að register-a annars eitthvað technical…” Ég gat ekki register-að út af því að það var ekki hægt að velja Ísland heldur bara England, Brasilíu, Ameríku og eitthvað og maður þurfti að setja inn “zip/postal code”.

En þið þurftuð alveg örugglega að setja inn “Zip/Postal code” líka þannig að ég spyr hvað settuð þið inn og endilega hjálpið mér með þennann leik.

<<Leprechaun
Rokk | Metall