Jæja…. ég er í flugvél í Kursk, er skotinn niður yfir þeirra base og er eitthvað að lingera þar og fylgjast með þegar ég sé T34 spawna. Ég hleyp að honum, sé enemy hlaupa að honum á sama tíma þannig að ég stekk í tankinn, sný mér við og drep hann. Ég bíð síðan átekta og fylgist með hvort einhver annar sé þarna á svæðinu, og sé einmitt hann Iceman hlaupa að flugvélum þarna. Mér er ekki til setunnar boðið og drep hann, og dríf mig svo í burtu til að halda tanknum á lífi.

Viti menn, þegar ég er á leiðinni í burtu fæ ég skilaboðin “Lame Zedlic, lame.” frá honum Iceman.

Nú spyr ég: Er það orðið lame að nappa tækjum frá óvinabase? Ég gerði það, drap það sem var í kringum mig og fór svo.

Ég veit að þetta er eins mikill nöldurpóstur og þeir verða en hey, ég er nöldrari…

Ég vil líka þakka [The Lost]Lalli-Oni fyrir hið frábæra comment “Þú hefðir þá bara getað stolið honum án þess að drepa okkur.”. Alveg óborganlegt. Ekki fannst þér þetta í alvöru?

Zedlic<br><br>

…og að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði