Ég veit að þessi póstur á eftir að koma einhverjum (aðallega þó einum) ykkar fremur spánskt fyrir sjónir, þar sem hann er nú einu sinni hérna á huga, þar sem kvartanir og leiðindi eru daglegt brauð. En með þessum pósti vil ég þakka Smegma og/eða hverjum þeim sem átti hlut að máli í því ferli að koma Battle of Britain mappinu svona (tiltölulega) snöggt inn á rotation á simnet. Einhverjir ykkar eiga þó enn fremur eftir að saka mig um að reyna að hala inn stigum með þessum pósti, en leyfið mér að fullvissa ykkur um það að mér gæti ekki verið meira sama um stigin á huga. Ég vil reyna setja betra fordæmi með þessu og vona að fleiri BF spilarar (og hugarar) geti reynt að einblína einnig á það sem vel fer, en ekki einungis það sem fer úrskeiðis.<br><br>[I'm]Jolinn

I wouldn't venture out there, fellas. This sniper's got talent!