Þetta var nú að gerast núna í kvöld, og mér fannst að heimurinn ætti að heyra um þetta, því þetta var bara hlægilegt…

Ég var nýbúinn að ná í BoB mappið (næs mapp btw) og var að testa það á hate BoB only servernum þegar pöbbarinn hann Soldier stingur inn höfðinu. Við dútlum við eitthvað og svo breytir hann nafninu í Holy Soldier og fer stuttu seinna. Svona hálftíma seinna fer ég á Simnet og veiti því athygli að þar er fólk spjallandi á ensku, þar sem allir eru að spjalla við…gaur sem heitir Holy Soldier! Allavega er [I'm]Sunshine að spjalla á fullu um að hafa samband eða eitthvað, en ég ákveð að leiðrétta þetta. Fyrst um sinn þvertekur Sunshine fyrir möguleikann að þetta sé ekki dani, en ég bendi honum á þetta frábæra ping frá danmörku (uþb. 13, sem Holy sagði að væri útaf 6mb tengingu frá vinnu…en klukkan þar var um 1 á sunudagsnóttu, halló brjálaði vinnutími) og svo fer ég að pota allskonar spurningum á dönsku og ekkert var svarið…spurningum eins og hvar stafsetningarvillur væru í dönskunni og hvernig danska maraþonið hefði farið síðasta haust (ath maraþon þar er um vorin). Þanniog gengur það þar til Holy gefst upp og segir á hreinni íslensku “OK ég er að bögga ykkur!” Oh the sweet taste of victory! Semsagt Holy, sem var í raun Soldier, búinn að klúðra gerfinu sínu og var nú hátt hlegið að kauða! Það er dáldið erfitt að lýsa stemningunni en hún einkenndist af orðunum “ha ha ha”.

Þannig að GG [I'm]Sunshine, en Soldier, þú er hálfviti og aðhlátursefni í þokkabót. Breyttu nú um nick svo við förum nú ekki allir að hlægja að þér alls staðar.<br><br>===
TFC: |CDC|Nosebleed-TPF-
BF1942: [JAMMA]Col.Nosebleed
NS og ET og flestallt annað: Nosebleed