Ég vil benda á að fortress hefur verið breytt í Battlefield 1.4 server. Með fullri virðingu fyrir Hate servernum og því ágæta klani þá er serverinn þeirra vel á mörkunum að höndla 20 menn og því vill ég benda að fortress ætti að standa sig betur í því.

Einnig vill ég benda á meðan að allir serverar á landinu liggur við eru á skjálfta hef ég breytt CP servernum í public EOD 11% server. Takið eftir 11% en það er fyrir BF 1.4 version. Tengingin ætti vel að þola 16 spilara og hugsanlega meira. Downloadið er ca 170mb og það þarf að uninstalla gamla. Password á CP serverinn er virki. Ég er að vinna í því að koma downloadinu einhverstaðar fyrir en á meðan maður fær ekki aðgang að setja þetta á huga síðuna er þetta alltaf basl.

ATH! CP serverinn er á fínni tenginu DEAD MAN WALKING og hann áskilur sér rétt á að slökkva á honum ef hann þarf að nýta bandbreiddina. En einungis með viðvörun þó og hugsanlega ef hann er í góðu skapi leyfir hann mönnum að klára roundið.<br><br>[CP] DEAD MAN WALKING

<a href="http://www.claypigeons.tk">http://www.claypigeons.tk</a>

- þó ég tapi fyrir ykkur í battlefield mala ég ykkur í bekkpressu :)
Kveðja Kristján - ice.Alfa