Mig langar að senda inn grein um þetta(sumt er soldið skondið) en ég á ekki leikinn en er að fara að kaupa hann. Hér kemur hún:

Fyrst þegar ég prófaði leikinn(ég prófaði hann hjá frænda mínum) þá fór ég í Iwo Jima og var Allied. Það fyrsta sem ég gerði var að fara í flugvél en þá ég ítti óvart á bomb takkan og flugvélin sprakk auðvitað og ég með. Svo brotlenti ég flugvél nokkrum sinnum og skaut ég liðsfélaga minn niður einu sinni.

Svo fór ég í annað map(sem var Bulge held ég). Þar prófaði ég að fara í skriðdreka og allt var mjög gaman þangað til ég kom að flaggi og hoppaði út úr skriðdrekanum og þá kom óvinur og fór í skriðdrekann. Ég forðaði mér og komst í skriðdreka og náði að eiðileggja hinn skriðdrekann.

Þá lærði ég líka nokkrar aðferðir eins og “keyra jeppa á skrðdreka” aðferðina.

Ég vona að ykkur líki þessi grein og að það lifni aðeins yfir greinunum á áhugamáli.
Brostu framan i heiminn og hann lemur thig til baka i andlitid…