Á undanförnum vikum hefur aukist mjög mikið að fólk sem tk-ar mann segir ekki fyrirgefðu eftir á. Okei, sumir eru kannski nýbyrjaðir og kunna ekki að skrifa eða eitthvað þannig en það er annað þegar að menn sem eru í klönum sem eru virt eða öflug. Málið er að þótt að þú sért í klani ert þú engin guð.

Ef að einhver varpar sprengju á þig og segir ekkert, lætur maður það framhjá sér fara og spyrð hann kannski eða segir barasta ekkert. En þegar að þetta gerist frekar oft þá byrjar maður kannski með sorakjaft og leiðindi og sá sem drap mann byrjar að rífast á móti. Þá verður allt leiðinlegt og þá fer maður í vont skapog það er ekkert gaman (náttúrulega). Þannig að plís ekki byrja að vera með stéttaskiptingu í Battlefield því að það er það eitthvað sem við þurfum ekki á að halda. Þannig að þið sem fyrirlítið þá sem eru ekki eins góðir og þið, allavega verið kurteisir, því að þetta er herramannssport, eða allavega reynum að hafa það þannig.

Kveðja [FUBAR]Pvt]Lofthæna