Smá vandi hérna…í svona 2 af hverjum 3 skiftum sem mapp klárast í BF og það næsta byrjar að loadast, þá dettur leikurinn út og ég enda á desktopnum. Ekkert error message eða neitt slíkt. Einstöku sinnum rebootar tölvan sér sjálf, aftur engin error msg.

Hef ekki séð þetta fyrr en ég formattaði harða diskinn hjá mér og setti win2k upp. Er með geforce4, 1.9 GHz örgjörfa og 512 mb ram. DirectX 8.1 á sínum stað.