Fyrir þá sem vilja virkilega fíla sig inn í Battlefield og koma sér í gríðarlega stemningu meðan þeir eru að spila, þá er hérna smá lagalisti sem ég kom mér af stað. Get þess að DesertCombat 0.3 vídjóið kom mér virkilega af stað enda þar á ferð hvert meistarastykkið á fætur öðru.

En hérna er listinn (finnið þetta flest allt á kazaa):
* Theme From The Great Escape
* John William - Indiana Jones Theme
* Battle Of Britain March - RAF Fighter Command
* The River Kwai March
* “Aces High” - Luftwaffe March
* Longest Day Theme
* Tank! (Cowboy Bebop Theme) (soldið rokkað, fyrir jeppa og tank fílínginn)
* Golden Earring - Radar Love (líka rokkað, fyrir sama fíling og Tank!)
Svo að sjálfsögðu rúsínan í pylsuendanum (að mínu mati):
* Star Wars - Imperial March

Endilega komið með fleiri hugmyndir ef þið vitið um fleiri flott military orientuð lög (gömlu góðu Víetnam lögin eru náttúrulega snilld, man bara ekki eftir neinum eins og er).

P.S.
Þessu er aðallega beint, í góðlátlegu gríni til Aim@me og Torquemada. Nenniði vinsamlegast að hætta að sprengja mig á 30 sekúndna fresti… alltaf sama hljóðið sem ég heyri þegar þið eruð á servernum.. vráááááúúúmmmm (flugvélahljóð)… BAMM!!!

þetta er farið að jaðra við einelti :)