Zedlic,
í guðanna bænum ekki láta þennan mann fara í taugarnar á þér.
Ég viðurkenni að það er þreytt að vera ásakaður um svindl. Svo annað sem ég hef lært erfiðu leiðina,
ekki gera úlfalda úr mýflugu í bf/dc spilun. Alltaf einhver sem nennir að rífast tilbaka og það endar
bara í móral og vesen. þannig ég reyni að forðast bögg en það er ekki alltaf hægt.
En mín kenning á þessu atviki er að hann hafi bara verið fúll því að sniper tók hann,
(alltaf svekkjandi það) sérstaklega þar sem hann hélt hann væri svo öruggur.
Þú ert að mínu mati besti sniper á íslensku serverunum.
Að undanskildu mér að sjálfsögðu. :)
kveðja
phoenix