Nú var ég að spila eilítinn BF í Bocage rétt áðan, og var þar maður að nafni [I'm]Delw Guuur. Ég var Axis, og lá inni í húsinu hjá spawnpunktinum næst Axis base og beið eftir að hann kæmi og reyndi að ná flagginu, því ég hafði séð hann á leiðinni.
Hann fleygir sér bakvið sandpoka og sést ekki, ég bíð átekta, síðan kemur hausinn á honum í ljós undan hliðinni á sandpokanum og ég drep hann. Ætti ekki að vera flókið. En nei.
Strax og ég drep hann fer hann að kvarta yfir því hvernig ég ætti ekki að hafa getað drepið hann, hann væri í skjóli og þetta væri fáránlegt. Ég útskýrði hvað gerðist og þá segir hann mér að þetta ætti ekki að vera hægt, og þetta væri bara asnalegt. Mér fannst sterklega gefið í skyn að ég væri að svindla einhvernvegin.
Ég gekk meiraðsegja svo langt að “endurgera” atburðinn, láta hann koma aftur á sama stað og sýna honum, en þá lá hann í skjóli bakvið sandpokana og ég sá ekkert. Enn héldu umkvartanir áfram.

Hvernig er það, má ekki drepa neinn lengur? Þarf réttarhald yfir hverjum morðingja í þessum leik?

Gerum það, ekki láta þetta verða að CS, þar sem svindlásökunum er varpað fram um leið og í harðbakkann slær…

Zedlic<br><br>

…og að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði