Jæja, ég er bara einn einn Vígvallarspilarinn í kvörtunarham, og þetta skiptið verða 89th Infantry Division fyrir barðinu.

Nú minnist ég korks, sem ég nenni ekki að leita að, þar sem að mig minnir Anykey hafi verið að brýna fyrir leiðtogum liða á Íslandi að taka sína menn á teppið og tala við þá um spawncamp……bara að segja þeim að hætta því.

Þá voru 89th voða virðulegir og voru að ávarpa alla, og mætti halda að þeir hafi gert þetta sjálfir, en er það?

Nú var ég að spila Battle Of The Bulge hér fyrir nokkrum mínutum og hvað sé ég…….?

Menn 89th spila sem allied(eru nokkuð margir á simnet, eru víst á lani)og spawncampa þeir látlaust aðalstöðvar þjóðverja…..og eru búnir að missa 3 fána. Það er fáránlegt að spawncampa þegar liðið þitt er að tapa. Svo strunsa þeir yfir efri brúnna í bylgjum og taka tigerinn trekk í trekk. Þetta er fáránlegt, ég bið ykkur hérmeð kurteisislega að hætta þessu, og þetta á ekki bara við 89th menn, heldur ykkur öll!<br><br>Ekkert er fullkomið því allt er hægt að bæta.
A