Kæru Stríðsherrar,

Ég heiti Davíð Oddson og er *hóst*kóngur*hóst* forsætisráðherra Íslendinga.

Ég frétti fyrir stuttu að þið eigið í stríði og langaði til að kynna fyrir ykkur tilboð sem við á Íslandi erum þessa dagana að bjóða upp á.

Ísland mun lýsa yfir stríði með annari hvorri fylkingunni fyrir vægt ársgjald, þetta er tilboð sem að er mjög vinsælt þessa dagana og meðal viðskiptavina okkar eru meðal annars Bandaríkin og Bretland.

Innifalið í tilboðinu er:

*Ótakmörkuð afnot af lofthelgi Íslnds
*Atkvæði í sameinuðu þjóðunum
*Afnot af hinum glæsta sjálfboðaher Íslands (væntanlegur sumarið 2005)
*Hellingur af ljóshærðum bimbóum til að stytta hermönnum ykkar stundirnar

Í kaupbæti bjóðum við nú einnig í mjög takmarkaðan tíma tveir fyrir einn á stríðsyfirlýsingum, kauptu eina núna, og þú færð næstu stuðningsyfirlýsingu fría!

Fyrir þetta borgar þú aðeins EINA HERSTÖÐ!!!

Ekki vera vitlaus! Notfærðu þér þetta tilboð sem fyrst, og vertu í hópi hinna fjölmörgu þjóða sem hafa keypt sér stuðning Íslands!

Kær Kveðja,
King Dabbi Odd