Sælir hermenn…

Ég hef spilað nokkuð lengi BF1942 á simnet/fortress serverunum og skemmti mér yfirleitt konunglega. Frábær leið til að fá smá útrás ;)
Þó er ymislegt sem mér finnst leiðinlegt og til skammar fyrir spilendur BF1942 á Íslandi.

1. Teamkill. Þetta hefur oft verið rætt og læt ég það vera hér. Flestir vita um hvað þetta snýst. Það lenda allir í að teamkilla óvart eg þá finnst mér lágmarks kurteisi að segja allavega “sorry” í chattinu.

2. Þjófar. Á sumum borðum er ég oft engineer og næli mér í tank til að lumbra á óvinaliðinu. Það sem mér finnst óþolandi er þegar eigin liðsmenn stela tenkinum af manni. Maður er kannski í mestu makindum að gera við græjuna og þá kemur einhver bjáni, hoppar inn og keyrir af stað! Sama gerist oft þegar maður er með einhvern í turninum á vélbyssunni. Maður hoppar út til að gera við og hinn gaurinn fer á stýrið og keyrir í burtu. Þetta er óþolandi og hefur orðið til þess að maður er farinn að forðast að taka “farþega” og ég fer oftast fjarri mannabyggðum til viðgerðar.´
Eins er óþolandi þegar gaurar taka jeppa, keyra á fullu á næsta flugvöll, hoppa í flugvél og skilja jeppan eftir.

3. Flugvélacamp. Hvað er að fólki sem campar í hópi við flugvelli eða á flugmóðurskipum, oft allt að 10 saman í hópi! Hættið þessu og farið að gera eitthvað gagn. Þetta er frábær leið fyrir óvinaliðið að ná sér í aukið skor með að fara með tank eða álíka á flugvellina. Ég geri það oft. Svo lenti ég í skrítnu í gær þegar eitt borð var að byrja. Ég spawnaði “óvart” ofan á flugmóðurskipi og þá var ein flugvél að taka á loft og ég sá amk. þrjá aðila vera að skjóta á eftir flugvélinni! Hvað er að fólki?

4. Artillery. Endilega notið þennan snilldarfídus meira. Þetta getur gert ótrúlega mikið damage. Þetta er allt of lítið notað.

Jæja, ekkert fleira í bili sem ég ætla að böggast yfir. Nema kannski að ég heimta oppið mitt aftur á #BF1942.is …AnyKey :D

Baráttukveðjur,
Private Frost<br><br>There are only 10 types of people in the world:
Those who understand binary and those who don't.
There are only 10 types of people in the world: