Ég er búinn að vera að spila á public frekar stíft síðustu nokkra daga, og bara þrælgaman að drepa ykkur alla :). Það sem að fer samt óstjórnlega í pirrurnar á mér er þegar það kemur einhver hálfviti inn og teamkillar G R I M M T. einsog um daginn var eitthvað fífl inni með -24 og var ekkert að hætta.

Þetta er í fyrsta skipti sem ég lendi í svona skipulögðu teamkilli, þar sem að gaurinn skaut mig 4 sinnum í röð strax og ég spawnaði, og ég er ekki sáttur, þetta eyðileggur heilu borðin fyrir manni.

Eins sá ég í gær (minnir mig) einhvern fávita sem að message floodaði næstum allan leikinn með “requesting a pickup” og var svo einhversstaðar lengst útí rassgati.

Er í alvöru svona mikið vandamál að banna ip-tölurnar hjá þessum fávitum?? Af hverju eru eiginlega aldrei menn með rcon inni??? Þetta getur nú orðið soldið þreytt!<br><br>“I never make mitsakes”

Che