Ég er ánægður.
Ég er ánægður með það hversu margir eru farnir að átta sig á því hversu lítilvægir og ómerkilegir jepparnir eru í BF. Þeir gera ekkert gagn. Að sjálfsögðu ætti einungis að nota þá til þess að komast fyrr að flugvél, ekki eins og þeir verði nýttir í neitt annað, ekki satt?

Auðvitað eruð þið sem eruð nógu gáfaðir til að átta ykkur á því hversu ómerkilegir jepparnir eru miklu merkilegri og betri en við hin og auðvitað ættu þessir “jeppar” EINGÖNGU að nýtast sem persónuleg limósína ykkar að næstu flugvél. Annað er bara geðveiki.

…og fyrir þá sem nenntu ekki að lesa þetta, skilja ekki kalhæðni eða af einhverjum öðrum orsökum náðu þessu ekki skal ég summa þennan texta í eina setningu:

<b>ÉG HATA FÓLK SEM TEKUR JEPPA TIL AÐ KOMAST AÐ FLUGVÉL!</b>.

Að sjálfsögðu eru til undantekningar, en generally fer þetta allsvakalega í taugarnar á mér. Og við skulum ekki einu sinni minnast á þá fæðingahálfvita sem taka tank til að ná sér í flugvél…

Zedlic<br><br>

…og að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði