Ég hef verið að velta fyrir veseninu með “Your Cd-key is in use”
sem gerist mjög oft fyrir mig og aðra sem ég þekki. Það sem gerist er að þér er kick-að án nokkurrar ástæðu. Þótt að maður reyni að joina serverinn aftur þá kemur bara hin leiðinlega setning “Your Cd-Key is in use”.

Ég var orðinn svolítið vel pirraður á þessu vandamáli svo ég skelti mér á <a href="http://www.eagames.com“></a> og skrifaði í search ”Bf1942 CD-key proplem“.

Eftir að ég var búinn að kafa smá sá ég þar ”Kork“ sem hét CD-Key proplem.

Í ”korkinum“ var sagt að til þess að leysa Cd-Key proplem-ið þá þyrfti ég að gera eftirfarandi

1. Fara í Internet Explorer
2. Velja þar ”Tools“ og síðan ”Internet Options…“
3. Velja þar ”Delete Cookies…“

Ef að vandamálið leystist ekki við þetta, var hægt að endurtaka stiginn 3 og velja líka ”Clear History“ með ”Delete Cookies…"

Ég prufaði þetta og viti menn það virkaði, en aðeins í 10 mínútur eða svo. Ég reyndi þetta aftur og aftur kom sama vesenið :(

Ef einhver getur hjálpað mér (og vinum mínum) með þetta vandamál, bið ég hann endilega að láta í sér heyra.

Takk fyrir mig
Kv. Haukur