OK, ég var núna inn á simnet server og í Midway. Þegar ég fór í miðju mapsinns fór ég niður í 2fps… kom kall hægra meginn við mig og dritaði mig til dauða og þegar ég var að snúa mér við til að sjá hann… ekki séns… slide show.

Ástæðan að ég er svo fúll yfir þessu að ég er nýbúinn að fjárfesta í dýru skjákorti.

Hardware:
AMD2000xp
GeForce4 Ti4600
512mb DDR minni.

Ég myndi sjálfur álita þetta seem góða vél sem ætti ekki að lenda í þessu, Ég var að formata á sunnudag þannig no comments um það ;)
Ég er með nýjasta detonator: 41.09.

Einhver ráð ?