Jæja félagar.
Ég vil byrja á að þakka +SS fyrir leikinn. Spiluð voru 2 round í Wake Island. Við ([I'm]) sigruðum bæði, það fyrra með 9 að ég held og það seinna með um 150. Við vorum 1 færri í fyrra roundi, en jafnt var í því síðara. Það tók um hálftíma að byrja og var að mest okkur að kenna og vil ég biðjast afsökunar á því. Annað var að menn virtust ekki vita hvort verið væri að spila upphitun eða match byrjað, og þyrfti að skipuleggja það betur næst, en ok þetta hafðist allt saman. Mætti t.d. hafa lengri spawntíma þegar round er að byrja. Einnig var þetta nokkuð fyndið í byrjun þar sem enginn gat zoomað á byssurnar, skrítið ha.
Enn og aftur þakka ég fyrir.
Kveðja
[I'm]Eagle
Kveðjur