Om með “þurs” meina ég auðvitað ekki þjóðsagnaverurnar heldur aðra og verri tegund skrímsla: Teamkillers!

Ég lenti í því um daginn að einhver dúd var að skjóta Spitfire flugvélarnar í El Alamein þegar einhver fór í þær og fór síðan sjálfur í vélina. Hann stórskemmdi auðvitað flugvélarnar á þessu þannig að það var lítið mál að ljúka verkinu, eyðileggja flugvélina og drepa fluvélaræningjann, svona bara til að gefa honum smá kennslu í mannasiðum…
Það fyndna var að hann virtist ekki gera sér grein fyrir því að hann væri að gera eitthvað “rangt”. Hann var að vísu beðinn um að #$&“$%&-ast til að hætta þessu nokkrum sinnum en að lokum hætti hann.
Hvers vegna ég votekickaði honum ekki bara? Ja, flestir BF spilarar kunna ekki einusinni að votekicka! Ég ætla bara að minna á góðu skipanirnar tvær:

Í console:
Game.listplayers - Þetta kallar fram lista af spilurum á servernum og maður sér IDið á spilurum.
Game.votekickplayer id - Þetta notar maður til að tjá þá skoðun sína að fíflið eigi bara að fara að spila Tetris (yeah, you know what I mean…)
Game.votekickteamplayer id - Gerir það sama og ”Game.votekickplayer" nema það að hérna einskorðast tjáningarfrelsið við lið spilarans sem byrjaði voteið.

Nota þessar consoleskipanir! Og fyrir þá sem eru að lesa þetta kl. 4 að nóttu þá kemur auðvitað ID númer spilarans í staðinn fyrir id ;)

Good luck & have fun playing BF - as long as your fun doesn't take away someone else's!

Kv.
pancak3