Ég hef sofið á þess og komist að þeirri niðurstöðu að sjálfsagt væri best að hafa liðin jafnari þegar svo mikill munur er á liðunum. Hins vegar vil ég gjarnan benda ykkur á að sumir +SS meðlimirnir hafa sjaldan spilað tölvuleiki, og jafnvel hefur hún Girl XXX aldrey komið nálægt því fyrr en nú. Þegar mikill munur hefur verið á liðunum hefur mesti partur okkar verið nýliðar sem enþá eru að læra að endurhlaða vopnin sín eftir að byssan tæmist. +SS klanið er enn að berjast við að ná grunnþroska sem lið og greinilega er það að takast þegar menn skjálfa á beinunum og ráða sér ekki fyrir reiði. Þá vil ég sérstaklega benda á svarbréf Snake1 sem augljóslega hefði viljað skrifa það með blóði. Lahire lætur sér samt fátt um finnast og tek ég að ofan fyrir þér fyrir einfalda og góða afsöðu. Við erum samt ekki öll nýgræðingar og í þeim aðstæðum sem við erum margir er ég tilbúinn að fallast á það að jafna liðin til að gera leikin meira spennandi þegar við erum margir inni. Viringarfyllst +SS GHOST.
idkfa+iddqd