Ok, nú er ég búinn að spila demo-ið á fullu í gær og dag og ég er heillaður! En það eru samt nokkrir hlutir sem fara mjög í taugarnar á mér, og þá sérstaklega hversu lélegt teamplay menn sýna oft. Þessi leikur gengur útá teamplay og ef það er lélegt er liðið lélegt…

Svo við tökum dæmi úr tveimur síðustu leikjum kvöldsins hjá mér:

Axis að riðjast inní eitt base-ið, ég er einn þar, scout. Bakka inní hús og þeir vita ekki af mér, er með 5 skot í byssunni. Reporta að ég hafi séð units og requesta backup aftur og aftur. Tek út 5 gaura og fatta síðan ekki að byssan er tóm og er drepinn í framhaldi af því… EN HVAR VAR BACKUP-IÐ!?! Það kom ekki einn maður og að sjálfsögðu misstum við þetta base…

Axis eiga eitt base og koma því allir þaðan, ég kalla í talstöðina og bið menn um að elta mig, ráðast á enemy flag og þar fram eftir götunum. Og hvaða viðbrögð fæ ég? Einn til tvo menn… COMMON! Þetta gengur ekkert svona.

Erum að verja airfieldin og allt að gerast, standa þá þrír gaurar og bíða bara eftir flugvél (veit að þetta er gamalt issue), það náttla gengur alls ekki, og því verður að linna!

Skriðdrekar, ekki fara einir á þeim! Pickið upp mann á byssuna, tala nú ekki um ef það eru menn allt í kring! Ég ÞOLI EKKI þegar menn keyra bara í burtu (sama hvaða farartæki það er, líka flugvélar því þær eru jú tveggja manna!), sérstaklega ef maður requestar pickup! Sumir eru þó tillitsamir og bakka og ná í mann, það er alvöru teamplay!

Verðum að spila betur saman, fyrstu 3 skiptin eða svo sem ég spilaði sökkaði liðið gjörsamlega því enginn var að spila með liðinu, t.d. hoppaði ég í byssuna í dreka og þegar við erum að keyra af stað henti einhver fáviti grensu undir drekann og við sprungum í tætlur! Teamplay í lagi…

Spilum saman og tjáum okkur, bæði í gegnum talstöðina og Say team (ekki all!). Þetta er ekki flókið. Í síðasta leiknum sem ég spilaði í kvöld voru ekki nema fjórir sem notuðu talstöðina að einhverju ráði (með mér) og voru þeir yfirburða menn í liðinu :)

Með von um farsælt framhald og batnandi spilamennsku!

[.Thunder.]Loverboy
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _