Jæja strákar nú verðum við að fara að gera eitthvað rótækilegt á þessu áhugamáli… Mér finnst að við
á Íslandi.. ef áhugi er fyrir að t.d. smella einum til 2 serverum upp í BF1942 kannski manna í scrim og
svo framvegis og skemmta okkur konunglega eins og í gamla daga… Líka er þetta áhugamál
hálfdautt og endilega vera duglegir að senda inn myndir, kannanir og þá vanda sig við kannanirnar
og hafa smá humor í þeim eins og ég geri… maður verður nú að brosa af og til… en já eins og ég segi
þá verðum við hérna á Íslandinu góða að fara að gera eitthvað í okkar battlefield áhugamáli því mér
finnst þetta hálfdautt, ekkert mikið að gerast hérna allavena… Eina ástæðan fyrir því að ég kíkji hérna
inná er að tékka á BF1942 linknum no offense aðrir gaurar en mér finnst hinir leikirnir ekkert í
samlíkingu við bf1942 og finnst það bara nauðsynlegt fyrir lífið að hafa bf1942 í lífi okkar… Engir
serverar eru uppi eins og er sýnist mér og ég veit ekki hvort það hefur verið eitthvað lengi sú aðstaða…
en ef einhver er tíl í smá ventrilo chat og bf1942 leik þá er ég game endilega sendiði mér msg hérna á
huga bara ef þið hafið einhvern áhuga fyrir því… svo vil ég hvetja folk til að kaupa þennan leik enda
kostar hann heilar 2000 kr það era ð segja deluxe edition með öllum aukapökkum sem hafa komið út
og telst það ekki mikið fyrir svona góðan og klassískan leik…. Svo ég hvet ykkur til að hafa samband við
mig og við hringjum í alla gömlu spilarana og spörkum í rassinn á þeim þangað til þeir kíkja á völlinn með okkur….

Kveð í bili Grisli….

Efast um að einhver kannist við mig en hey whatever! ;D