Desert Combat Final eða DC 0.8 var að koma út núna fyrir stuttu síðan.

Þetta er hálfgert unofficial DC útaf því að Dice keypti Trauma Studios (þeir sem gerðu DC) en fáir sem voru að gera DC vildu halda áfram að klára þetta fína mod. Það hefur verið mikið updatað og er nú miklu skemmtilegra að spila. Hér fyrir neðan er listi yfir það sem er nýtt.

Ný farartæki:

F-117 Nighthawk stealth fighter, sem við höfum öll beðið eftir síðan DC 0.4, ég varð fyrir vonbrigðum þar sem erfitt er að fljúga hana og nota bomb view.

BMP-1. Þessi nýji skriðdreki er mjög líkur BMP-2 sem hefur verið nokkuð lengi í moddinu en í stað 30 mm byssu þá er komin 73 mm flugskeytisbyssa og venjuleg 7,62 vélbyssa hjá drivernum, og önnur flugskeytisvarpa líkt og í BMP-2 á stað 2.

BRDM-2 Gaskin. Nýr BRDM sem er með 8 SA-7 loftvarnarflugskeyti ofan á í staðin fyrir vélbyssu og AT flugskeyti. Hann er slappur gegn skriðdrekum og köllum en hann segir til sín gegn þyrlum og flugvélum.

Nýr bradley með 4 flugskeyti í stað 2. (Hef bara séð hann í einu mappi man ekki alveg hvaða)

Patriot Missile. Nú eru Coalition loksins jafnvígir Íraka gegn lofti ólíkt áður. Þeir eru komnir með Patriot Missile, sem er afar líkt SA-7 sem Opposition hafa.

Spawn Truck. Bara enn einn annar trukkar til að ferðast með kalla.

Ný Möpp:

Al-Nas. Skemmtilegt borð, innanborgar að mestu leyti eins og Basrahs edge.

Bridge. Aðalmálið er brúinn, það lið sem heldur henni á miklu meiri séns en hitt liðið.

Cornered. Standard borð með þyrlum og skriðdrekum.

Coastal Hammer. Írakarnir byrja á eyju langt frá með 1 BM-21 stórskotaliða og nokkra BMP-1, BMP-2 og BRDM-2 bæði með vélbyssu og rockets.

Dust Bowl og First Light eru bæði svona borð eins og Desertshield, bara ná fána og drepa óvini á stórt eyðimerkursvæði.


Grafíkin er miklu betri, mörg skins hafa verið uppfærð og er moddið núna miklu flottara en áður.

Hljóðið er nú miklu raunverulegra, maður fær svona mórals-tilfinningu núna.

Linkar:
http://fpscentral.ampednews.com/?site=file_info&id=2786

þetta er útlenskt download þannig að ég mæli ekki með því nema fyrir þá sem eru með yfir 400 megabytes á mánuði eða meira og eru með 361 mb eftir af því eða meira.

Nauðsynlegt er að hafa DC 0.7 til að installa þetta mod, ég er með innlentann tengil að því

http://static.hugi.is/games/bf1942/mods/Desert_Combat/DesertCombat_0.7_Full_Install.exe

Ég gæti uploadað það á huga, en ég er ekki með aðgang…
Bleagh!….