Það er kominn tími til að vekja upp smá umræðu um tactics, (allavega eitthvað annað en að fara í US, velja M60/LAW og svo spray'n'pray). Svo að ég skellti saman nokkrum punktum um tactics eftir að hafa lesið mér til á official forums hjá EA (http://www.forumplanet.com/planetbattlefield/)

o BF:V er teamplay leikur! Þú ert miklu fljótari að ná flöggum, það eru meiri líkur á því að einn af þrem-fjórum í hóp nái að drepa RAMBO áður en hann sallar alla niður, skriðdrekar og Infantry bílar(þeir sem hægt er að gera við án þess að fara út úr) verða miklu áhrifaríkari þegar það eru einn eða 2 eng með í för.

o Það er böggandi þegar megnið af US er komið með M60 kittið. En hvað geta NVA gert?
RPD er næstum jafn öflug, og að er staðreynd að það nota afskaplega fáir Rambóar LAW/M79 með m60. AK-47 er líka næstum nægilega góð til að vera sniper + að mér finnst persónulega miklu betra að miða með henni (Alltaf jafn gaman að taka n00b með M60 bara á því að beygja sig, miða og gera 3 round burst áður en hann fattar að þú ert NVA. En það sem ég mæli með er SVD sniperinn, skjóta þá áður en þeir sjá þig, vandamál leyst.

o Ég segi það aftur, teamplay! Það er ekkert mál að mynda smá hópa, bara með því að elta næsta mann, og ef hann er með einhverskonar stjórnu fyrir ofan nafnið sitt, og heitir ekki player/spieler(_0,_1,_2…) þá er mjög líklegt að hann hafi einhverja hugmynd um hvað hann sé að gera.

o Ef þú sérð einhvern skjóta á þyrlu, hjálpaðu honum, það þarf um það bil 150 M60 skot til að taka niður meðal þyrlu, svo að 4-5 með Ak-47/RPD… eiga að geta hrakið hvaða þyrlu sem er á flótta ef hópurinn er nægilega dreifður til þess að lenda ekki í einni rocket (muna bara að miða á efri part þyrlunnar og nota stutt burst til að framkalla sem mestann skaða úr hverju clippi).

o Notaðu Booby traps og Sniperana ef þú ert NVA. Ég reikna með því að þú hafir séð Apocalypce Now eða Full metal Jacket. Það er staðreynd að bandaríkjamenn voru með dýrari vopn, flottari farartæki og fleiri þyrlur, og þrátt fyrir það voru lífslíkur bandarískra hermanna um 3 min, og það dóu 3 NVA fyrir hvern Marine. SVD camper á góðum stað getur tekið út 4-5 marines áður en hann finnst, og svo einn enn með caltrops og skammbyssu (virkar betur á efri hæðum í borg).

o Í borðum eins og Operation Irwing og Flaming Dart er hægt að halda flestum punktunum á mappinu sem NVA með því að vera nokkrir saman með SA7 og svo 1-2 með AK47 til að taka niður þá sem láta sig flakka í fallhlíf.

o Taktu vopnin hjá hinu liðinu. Hvort lið fyrir sig hefur mjög aðgreinanleg skothljóð = Það tekur augnabliki lengur fyrir óvin að átta sig á því að það sé verið að að skjóta Á hann, ekki bara teammate einverstaðar nálægt. Þetta getur þýtt að þú færð eitt “frítt” burst ef þú hittir ekki í fyrsta, á að vera nóg til að drepa gaurinn, jafnvel gaurinn við hliðina á honum.

o Lærðu að fljúga, ef þú nennir ekki að fara í single player og æfa þig, áttu ekki skilið að fá þyrlu á public. Ef þú neitar að fara úr þyrlu og byrjar svo á því að taka hetjulegann snúning á næstu þyrlu/hæð/byggingu/flöt, þá ertu réttdræpur samkvæt mínum bókum. Og já, það ER erfitt að fljúga Chainhook, ef þú ert ekki viss um að geta það, ýttu þá bara á 2, hún er með Kickass “shotgun” vopn.

o Bíddu í nokkrar sek með að taka á loft, þú þarft hvort sem er að lenda aftur þegar 3 pirraðir gaurar fara að skjóta á þig vegna þess að þú varst fyrstur, svo er betra að hafa einvern á öllum vopnum í þyrlu.


Held að þetta sé orðið gott í bili. Nú er komið að ykkur, kæru meðhugurum að leiðrétta, bæta við, gagnrýna og flaima þessa punkta.

kv.
Equilibrium