[FUBAR] 1 ÁRS ! Hann á afmæli í dag.
Hann á afmæli í dag.
Hann á afmæli hann FUBAR.
Hann á afmæli í dag……

Nú í febrúar á Battlefield 1942 clanið [FUBAR] 1 árs afmæli og af tilefni þess hefur liðið fengið nýja heimasíðu að gjöf ásamt nýjum og bættum korkum. Auk þess verður haldið LAN í lok mánaðarins þar sem ALLIR [FUBAR] meðlimir er hvattir til að mæta og fagna á þessum tímamótum.

www.fubarteam.com

Vil ég nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa komið að [FUBAR] á einhvern hátt á þessu eina ári og vonandi munum við hittast oft á næsta starfsári [FUBAR] á vígvellinum.


Smá um [FUBAR]:

[FUBAR] var stofnað í febrúar mánuði árið 2003 af Ryan og One Lung, Khas og Theo. Allir höfðum við spilað Wake Island Demoið af leiknum í hörgul og vorum ákveðnir að kaupa okkur þennan leik og spila sem og við gerðum. Ryan og One Lung spiluðu um tíma undir merkjum [RAF] en lögðu svo út í [FUBAR] ævintýrið. Upphaflega hvar ætlunin að skilyrði fyrir inngöngu vinatengsl við þessa 4 stofnendur en svo fór boltinn að rúlla og fleiri og fleiri gengu til liðs við okkur. Í dag erum við 25+ og ávalt að bæta okkur og verða sterkari sem lið. Frá upphafi höfum við haft það í fyrirrúmi að hafa gaman af leiknum , spila sem lið og skemmta okkur og mun ekkert koma í staðinn fyrir það……

[ F (Fucked) U (Up) B (Beyond) A (All) R (Recognition) ]

Nafnið var smá vandamál þar sem við vildum ekki hafa það tengt hvorti AXIS né ALLIED þar sem í Battlefield 1942 þurfa clönin að spila báðar hliðar. F.U.B.A.R. er slangur sem var notað í seinni heimstyrjöldinni af hermönnum bandamanna um e.h. sem var algjörsamlega á leið til andskotans eða ónýtt. Fannst okkur því við hæfi að nota það um Battlefield 1942 clan þar sem allt getur farið á annan endan í spennandi skrimmum. Þetta slangur sést meðal annars notað í myndinni “Saving private Ryan”.

[FUBAR] Ryan
e-mail: ryan@fubarteam.com
web: www.fubarteam.com