Mod Gagnrýni v1.0 Mod Gagnrýni v1.0

Jæja, þar sem nú vindar fram nýjum moddum í hundraðavís ætla ég (DeViouS) að
Byrja með smá gagnrýni á það sem þið ættuð eða ættuð ekki að eyða tíma ykkar í að downloada.

Stigagjöf -
Stigagjöf verður frekar einföld, hæsta stig 10 og lægsta 1 (fyrir það að reyna).
Svo verður einnig aukagjöf sem mun segja til um hvaða kostir eru góður/slæmir..
td. Faglegt Yfirbragð - 4/5 (útskýring) eða Kóðagerð - 2/5 (útskýring)



Paralell Worlds v0.61

Þetta mod á að gerast í samhliða heimi sem er, tjah ekkert allt of
raunverulegur stundum, flestir hlutir eru samt nálægt raunveruleikanum

og/eða óbreyttir frá BF1942.

Það má segja að þetta mod sé brautryðjandi á ýmsum sviðum, sem dæmi má
nefna að þetta er eitt af því fyrsta (ef ekki fyrsta) semi-súrrealíska

moddið. Einnig eru margir hlutir (tæki sem og vopn) sem nota áður óþekkta
tækni. Til dæmis VTOL b17 (Vertical TakeOff and Landing) sem getur

airdroppað sherman og stórt vélmenni með BounceBomb (skoppandi sprengja sem eldflaug).

Moddið hefur fengið alls 8 uppbætur og ekki er hægt að segja að þróun
þess verði hætt á næstunni.

******* 7/10 í heildareinkunn. Þessu skaltu downloada ;)

Útlit - 4/5 vel gerð módel en lítil sem engin skinn fyrir gamla hluti.

Kóðagerð - 4/5 Engir gallar nema með að labba með Spider-tiger og Vélmennið.

Faglegt Yfirbragð - 3/5 Yfir meðallagi en samt mikið af göllum.

Undirskrifaður fann ekki heimasíðu modsins en download er hér (útlent)
http://www.planetbattlefield.com/bf1942/tweak in/mods/parallelworld/index.shtml
——————– ————————

Experience World War II v2.3.6

xpWWII er eiginlega ekkert nema viðbót við bf1942.
Modið stefnir að því að gera leikinn raunverulegri og byggja við hann.

Þegar þú byrjar að spila, muntu næstum strax taka eftir breytingum.
Td spitfire er nú með 8 skotgöt og skotfæraeyðslu samkvæmt því, einnig
hefur sprengjunum fækkað í einmanalega eina.

Flestöll skriðdrekaskot drepa annann skriðdreka í einu, að snúa turninunn
er nú erfiðara og öll skot hafa lítið sem ekkert drop (ekki vel sjáanlegt drop)
sem gerir það að verkum að skotin drífa nánast endalaust.

Ný skinn, ný módel og nýtt mapp gefa þessu modi forskot á það sem minna er klárað.

****** 6/10 í heildareinkunn. Yfir meðallagi en sést örugglega ekki á íslenskum serverum.

Útlit - 3/5 Gerir það sem það lofar, en það lofar ekki miklu.

Kóðagerð - 4/5 Aðalhlutur modsins, skilar sínu.

Faglegt Yfirbragð - 3/5

heimasíða modsins: er ekki til, eitthvað info og einhverjar myndir eru hér
http://www.gamershell.com/news_BExperienceWWIIBv2. 3.6.shtml
——————————————– -