Þú veist að þú ert búinn að vera of mikið í Battlefield þegar:

- Þú stendur þig að því að svipast um eftir sniperum þegar þú ert að rölta úti (kom actually fyrir mig)

- Þú sakar fólk sem þú hittir um svindl því það er ekki með neitt tag fyrir ofan sig.

- Þú svipast um eftir AA-guns í hvert skipti sem þú heyrir í flugvél

- Þú öskrar “I need anti-tank support!” í hvert skipti sem strætó nálgast

- Þú sérð eitthvað merkilegt gerast í real life og hugsar: “Best að taka screenshot af þessu”. (hefur komið fyrir mig)

- Þú ert farinn að segja “Eff einn eff einn” í staðinn fyrir “Já”.

- Þú ert farinn að halda niðri í þér andanum sem scout áður en þú skýtur til að trufla ekki aimið.

- Þú skammar alla farþega sem bíða á flugvellinum fyrir flugvélacamp.

- Þú öskrar “Takk medic!” eftir heimsókn til læknis.

- Þú öskrar “Takk engineer” þegar þú sækir bílinn á bifvélaverkstæðið.

- Þú biður um að fá að standa á vængnum ef flugvélin er fullbókuð.

- Þú bíður ekki eftir flugvél í biðsalnum heldur stendurðu úti á flugbrautinni á nákvæmlega þeim stað sem vélin mun stöðvast á, heldur á lyklaborði og heldur inni “E”.

- Þú lítur út um gluggan á hverjum morgni í von um að Ferrari hafi spawnað á bílastæðinu ykkar.

- Þú ert hættur að labba niður stiga í hærri húsum, þú bara stekkur af svölunum og notar fallhlíf.

Dettur ekkert fleira í hug eins og er… bætið bara við.

Zedlic