Nú er að koma út plástur 1.3 fyrir þennan frábæra leik BF. Eftir því sem ég hef heyrt um hann líst mér vel á margt þarna, en hræðilega á sumt.
Tökum nokkur dæmi:

- Damage frá vélbyssunum og flökunarvélunum gegn flugvélum hefur verið lækkaður um 50 prósent.

Þetta finnst mér alls ekki gott. Mér finnst nú alveg nógu erfitt að taka flugvélar út núna og get ekki ímyndað mér að tvöfal fleiri skot eigi eftir að gera það neitt auðveldara. Mér finnst flugvélar vera alveg nógu öflugar núna og ef þetta verður að raunveruleika held ég að enn fleiri \“smacktards\” eigi eftir að sitja um flugvélarnar á flugvellinum því það er svo rosalega erfitt að skjóta þær niður.

- Ekki verður lengur hægt að skjóta sjálfan flugmanninn, bara vélina.

Þetta finnst mér ekki gott vegna þess að það að geta skotið flugmanninn var einskonar bónus fyrir mann ef maður var hittinn/heppinn. Þetta finnst mér gera flugvélarnar ennþá öflugri, þó ekki mikið því það er ekki eins og þetta hafi verið rosalega algengt.

- K98 og No4 munu verða 33% fljótari að reloada.

Þetta finnst mér ágætt, en samt eiginlega óþarft. Þó er ég ánægður þar sem ég er oftast scout. Kannski maður fari samt bara í flugvélina eftir þetta patch…

- Langir loadingtímar, vesen með SBLive og XP, SafeDisk-check vesen, allt þetta á að lagast.

Sem er gott. (Lesist eins og bílagaurinn á Skjá Einum hafi sagt þetta.)

- Og nú er komi að rúsínunni í pylsuendanum: Lítið sem ekkert leading!

Tekið skal fram að þetta er ekki tekið fram í official breytinga-announcementinu á patchinu, þetta er bara eitthvað sem er til staðar í beta-patchinum sem var lekið. En ef svo vill til að þetta er satt verð ég að segja að ég er yfir mig hoppandi óánægður og reiður með þessa breytingu. Það að þurfa að \“hugsa\” áður en þú skýtur á óvininn er einmitt það sem gerir þennan leik að því sem hann er! (Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að greinarnar supporta ekki bb-code en fyrir mér er setning með \" \“ utanum feitletruð.)

Fyrir mér var þessi leikur himnasending, loksins leikur þar sem þú þarft ekki bara að skella crosshairinu á óvininn og skjóta heldur actually hugsa örlítið og miða á undan honum. Eitthvað sem myndi halda CS-krökkunum frá þessum leik. En þessu verður mögulega breytt og nú þarftu ekkert að hugsa til að vera sniper, bara að vera góður í að færa músina á réttan stað á sem stystum tíma.
Það að verða góður sniper krefst æfingar og ég er ekki tilbúinn að kasta mínum klukkustundum af sniper-æfingum í burtu bara til að venjast nýja \”CS-AQ-Allir leikir í heiminum\" kerfinu sem krefst ekki neinnar hugsunnar né æfingar, nema kannski æfingar í að færa crosshairið á óvininn á sem allra stystum tíma. Og hvert erum við þá komin nema í CS?


Ég vil ítreka aftur að þessi síðasta breyting er ekkert nema sögusagnir og rumour.

Ef ske kynni að téð breyting væri sönn held ég að allt patchið myndi gefa af sér:
- Fleiri flugvélacampera, þar sem flugvélarnar eru orðnar ansi öflugar.
- Fleiri snipera, þar sem MUN auðveldara verður að vera sniper. Og after all, eru fleiri sniperar í Omaha ekki akkúrat það sem við þurfum?


Hvað finnst ykkur um tilkynntar breytingar og hvað vitið þið um þessa sögusögn og sannleiksgildi hennar?

Zedlic