Vegna brotthvarfs nokkura af okkar liðsmönnum,(sjá heimasíðu 89th) hefur verið ákveðið að bæta við 89th. “a few good men”. Eins og menn kannski vita þá gerum við í 89th. ákveðnar kröfur til meðlima okkar og eru þær meðal annars:

Að menn hafi náð 20 ára aldri
Að menn sýni þroska og kurteisi á serverum og í öllum samskiptum
Að menn séu reiðubúnir til að leggja sitt af mörkum fyrir liðið

Miðvikudaginn 29/01 kl. 20.00 munum við breyta 89th. servernum í 89th. tryout, með passanum “tryout” og munu umsækjendur þar spila á móti 89th. liðsmönnum, og úr þeirra hópi munu síðan verða valdir nýjir meðlimir.

Ef að þú telur að þú uppfyllir þessar kröfur komdu þá og reyndu þig.

Við viljum vinsamlegast biðja ykkur að virða aldurstakmark okkar og einnig meðlimi annara liða og þá sem að ekki hafa áhuga á að ganga til liðs við okkur að mæta ekki þetta kvöld.

Með fyrirfram þökk fyrir birtingu

Kveðja
[89th]Cap. $now
Kveðja