Smá hugmynd sem mig langar til að koma á framfæri…



Mig langar að byrja á því að þakka öllum þeim spilurum sem tóku þátt í feluleiknum á Simnet serverinum um daginn (reyndar um nótt/morgun).

Þetta var mesta skemmtun og væri ég meira en lítið til í að halda svona feluleik-dæmi aftur.

Stórskemmtilegt þegar fáir eru á serverinum og ekkert gaman að reyna að spila venjulega =)

Því miður er ég ekki með allt of gott minni, þannig ég man ekki öll nöfn en það var einn sem studdi mig í hugmyndinni allan tímann: 10000 þakkir Joker og allir hinir líka =)

Feluleikur…? spyrjið þið hin ábyggilega.
Þetta gengur þannig fyrir sig að allir fara í axis (eða allied) nema einn, sem fer yfir í hitt liðið.. t.d. á Iwo Jima: allied ná bara flugvellinum og spawna allir þar… síðan spawnar axis hvar sem er og felur sig… á meðan halda allir allied sig rólegir við fánann á flugvellinum þangað til sá sem felur sig segir GOGOGOGOGO!!! =)

Þá er að reyna með öllum tiltækum aðferðum að finna axis gaurinn.

Þegar maður sér hann má ekki skjóta á hann eða dúndra hann á tanki… bara að hnífa: gerðu enemy spotted og ALLIR koma líklega þangað. Axis gaurinn má heldur ekki skjóta á hina heldur er þetta bara hnífafight =)

Ef þér tekst ekki að drepa axis gaurinn, eða hann drepur þig, þá annað hvort felur hann sig aftur eða næsti maður tekur hann út…

The Most Phoenix: varst þú ekki þarna? =)

Sá og hinn sami sem tekst að finna og drepa axis kallinn fer þá stoltur yfir í axis og felur sig á meðan allir allied respawna á flugvellinum.


Hugmyndir og reglur:

Á meðan beðið er eftir því að gaurinn feli sig er MJÖG gaman að t.d. fara í t.k. slugfest með hnífum og detpacks =) (mæli með massive hnífabardögum…hehe)

Axis verður að vera með alla punkta á meðan falið er (í Iwo Jima) þ.e. nema að allied séu farnir að missa ticket…

Síðan er t.d. hægt að gera f5 f5 (copy that) s.s. skipanir sem að allir geta heyrt en koma bara fram hjá liðinu þínu.


Svona er nú hægt að hafa gaman að Battlefield 1942 =)

Enjoy!



+SS GÓÐUR (EVIL - ég lofaði að vera góður í 1 dag =) )

(marco…. POLO "The Most Phoenix[Knife]+SS Evil")

p.s. ég er að spá í að setja upp server fyrir fíflaskap: verður ábyggilega ekki alltaf uppi, verður ekki dedicated og ekki alltaf FF á…