Það sem ég hata..

1. Þegar leikurinn er að byrja og einhver hleypur að jeppa, fer inn og keyrir umsvifalaust af stað án þess að svo mikið sem líta í kringum sig.

Þetta þoli ég alls ekki, og oft hefur maður reynt að skrifa “bíddu mar” eða eitthvað meðan maður reynir að elta en aldrei hefur það tekist hjá mér. Hvað er málið? Fatta þessir menn ekki að það eru fleiri í heiminum en þeir? Ég skil svosem að í miðjum leik sé normal að einhver taki jeppa og keyri strax af stað (ég geri það þó aldrei) því þá er ekkert víst að það sé einhver nálægt til að pikka upp. En í byrjun leiksins eru svona 20 manns sem byrja á sama stað og ekki næg faratæki til að taka alla. Þetta finnst mér ótrúlega mikið hugsunarleysi.

2. Þegar einhver tekur jeppa einn til þess eins að fara 20 metra að næstu flugvél og skilur hann eftir þar.

Heldur þetta fólk að það sé ekki hægt að nota jeppana neitt betur en þetta? Heldur þetta fólk að það sé svo ótrúlega mikilvægt að það eigi að sjálfsögðu að fá að eyða heilum jeppa (því hann mun svo standa á airfieldinu þangað til hann springur) til þess eins að komast fyrstur að flugvél? Að sjá þetta gerir mig mjög reiðan.

3. Teamkillerar

Þarf nú ekkert að útlista þetta nánar…

4. Flugvélabiðraðagaurar

Sjá nánari útlistun á 3.

5. Spawncampera

Mér er sama þótt þetta sé supposedly algjörlega valid taktík og whatnot, þetta er alveg óþolandi að lenda í.

6. Borð þar sem home base hefur engin AA (Kursk anyone?)

Mjög pirrandi og býður bara uppá að hitt liðið gjörsamlega dominate-i home base-ið án þess að neitt sé hægt að gera. Gefið mér AA og þá hef ég ekkert á móti því að óvinurinn spammi home base með flugvélum því þá er allavega eitthvað hægt að gera í því.



Jæja þetta var bara smá bitchin’ í mér. Núna nokkrir hlutir sem please-a mig í BF:

1. Að skjóta mann á ferð í hausinn með sniper með því að lead-a targetið

Yndisleg tilfinning…

2. Að fylgjast með hlaupandi manni í gegnum sniper scope, vera þolinmóður, bíða eftir að hann stoppi, skjóta hann svo í hausinn.

Jafnvel muldra geðveikislega við fórnarlambið á meðan. (“Stoppaðu……stoppaðu elskan…….svo ég geti *BAMM* …….. drepið þig…”)

3. Að sjá flugvél með eitthvað illt í huga coming your way og flaka hana eins og úldinn fisk.

Sérstaklega gaman ef þetta var tveggja manna vél…

og svo eitt í lokin sem ég kynntist í CTF lan leik…

4. Að vera engineer í CTF leik, planta ExpPack alveg upp við þitt eigið flagg þannig að það sé úr enemy line of sight ef hann kemur gegnum main gate, leggjast svo einhverstaðar þar sem erfitt er að sjá þig en þú sérð flaggið, bíða þolinmóður eftir að enemy nálgist og *BÚMM*…..

Þetta er mjög óvinsæl taktík og þess vegna er hún þeim mun skemmtilegri :)

Jæja þetta var nú bara eitthvað sem mig langaði að setja niður um þennan frábæra leik… vona að þetta komist inn sem grein.

Zedlic