Nú eru komnar tölur um fjölda flettinga á áhugamálinu í desember. Fjöldi flettinga var 7,711 en það er 20,32% minnkun frá því í nóvember, sem var besti mánuður ársins á áhugamálinu.

Einungis tvær nýjar greinar birtust á áhugamálinu í desember og fjórar kannanir en í nóvember birtust sjö nýjar greinar og sex kannanir. 26 myndir bárust í desember en einungis sex myndir mánuðinn áður.

Alls voru flettingar á áhugamálinu 70,660 á árinu en það var 0.11% heildarflettinga á Huga.is.
___________________________________