Árið 1874 kom út hjá Hlöðvi Klein í Kaupmannahöfn bók eftir Þórarinn Böðvarsson, prófast í Görðum, Álftanesi. Bókin hét Lestrarbók handa Alþýðu á Íslandi en yfirleitt nefnd Alþýðubókin. Bókin er lítt þekkt í dag en hún hafði gríðarleg áhrif þegar hún kom út og sagt hefur verið að hún hafi verið “lesin upp til agna”. Alþýðubókinni var ætlað að uppfræða almenning um ýmis mál enda segir höfundur í formála sínum að það sé “[t]ilgangur slíkra bóka … að þar sje safnað á einn stað hinu helzta er þykir hæfa að vita”. Vinsældir bókarinnar urðu slíkar að hún henni hefur verið lýst sem “allsherjar skóla íslenskrar alþýðu á síðasta fjórðungi 19. aldar”. Áður höfðu Íslendingar einkum lesið P.Hjorts Danske Börneven, en nú var þeim aðgengileg lestrarbók á íslensku að því leyti var útgáfa bókarinnar ómetanleg.

Bókin skiptist í fimm kafla en hver kafli greinist svo í fjölmarga undirkafla. Leskaflar eru ætíð stuttir og því verður lesturinn ekki lengdreginn. Efni bókarinnar er úr öllum áttum: Um jörðina og íbúa hennar, dýraríkið, jurtaríkið, steinaríkið, efnafræði, tímatal og líffæri mannsins, mannkynssaga, Íslandssaga og stjórnspeki, dæmisögur, smásögur og heilræði, málshættir og kvæði og heilbrigði og trú svo fátt eitt sé nefnt. Bókin er einnig skreytt myndum, einkum þar sem rætt er um dýraríkið.

Lestrarbók Þórarins Böðvarssonar er tvímælalaust ein sú áhugaverðasta bók sem gefin var út á íslensku á 19. öld. Síðan bókin kom út hefur vísindunum fleygt áfram og ef til vill er ekki allt nákvæmt sem segir um efnafræði og önnur skyld efni. En annað hefur staðist tímans tönn, svo sem stuttir kaflar úr mannkynssögunni, dæmisögur og þær tæplega 50 gátur sem í bókinni eru, en á þeim má enn spreyta sig og hafa gaman að. Þá er bókin einnig skrifuð á fallegu og góðu máli og margt má af Þórarni læra um góðan stíl.

Bókfræðilegar upplýsingar:

Höfundur: Þórarinn Böðvarsson (1825-1895)
Titill: Lestrarbók handa Alþýðu á Íslandi
Kom fyrst út: 1874
Útgefandi: H. Klein
Útgáfustaður: Kaupmannahöfn
Útgáfuár: 1874
Blaðsíðufjöldi: 432 bls.
___________________________________