Alice’s Adventures in Wonderland Árið 1865 kom út ein ástsælasta barnabók sem um getur. Það var bókin Alice’s Adventures in Wonderland (eða Lísa í Undralandi eins og hún heitir á íslensku) eftir Lewis Carroll (1832-1898). Carroll, sem hét raunar réttu nafni Charles Lutwidge Dodgson, hafði skrifað ævintýrið handa vinkonu sinni Alice Liddell, barnungri stúlku, en Carroll hafði mikið dálæti af börnum og kunni jafnvel betur við sig innan um börn en fullorðna. Alice var ein dætra fornfræðingins fræga H.G. Liddells, sem þá var skólastjóri í Chist Church, Oxford, þar sem Carroll hafði kennt stærðfræði frá árinu 1855.

Flestir kannast við söguna um Alice (Lísu), sem eltir hvítan héra ofan í holu og lendir svo í furðulegustu ævintýrum neðanjarðar, þar sem furðuverur eru við hvert fótmál. Ef til vill er hjartadrottningin snælduvitlausa flestum minniststæðust? Eða kötturinn sem hvarf þannig að ekkert var eftir nema brosið? Allt um það er sagan hin skemmtilegasta jafnt fyrir fullorðna sem börn, enda afar vel skrifuð. En Carroll var ritfær mjög og því kjörið að þeir sem lesið geta ensku lesi bókina á frummálinu.

““Then again – “before she had this fit –” you never had fits, my dear, I think?” he said to the Queen.
“Never!” said the Queen furiously, throwing an inkstand at the Lizard as she spoke. (The unfortunate little Bill had left off writing on his slate with one finger, as he found it made no mark; but he now hastily began again, using the ink, that was trickling down his face, as long as it lasted.)
“Then the words don’t fit you,” said the King, looking round the court with a smile.” (bls. 145).

Bókfræðilegar upplýsingar:

Höfundur: Lewis Carroll (1832-1898)
Titill: Alice’s Adventures in Wonderland
Kom fyrst út: 1865
Útgefandi: Penguin Books
Útgáfustaður: London
Útgáfuár: 1994
Blaðsíðufjöldi: 152 bls.

(gthth)
___________________________________