Bækur Guðrún Helgadóttir er einhver besti barnabókahöfundur Íslands. Hún skrifaði meðal annars “englabækurnar” (Sitji Guðs englar, Saman í hring, Sænginni yfir minni) sem allt eru snilldarbækur. Bækurnar um Jón Odd og Jón Bjarna þekkja allir og leikritið þar sem fullorðnir og börn skipta um hlutverk er hrein snilld.