Ég var í Eymundsson í gærkvöldi og sá að þeir voru komnir með framhaldið af Hann var kallaður þetta sem heitir Umkomulausi drengurinn (á ensku The Lost Boy).

Þar sem að ég hef beðið eftir þessu framhaldi síðan á síðasta ári þá verzlaði ég mér að sjálfsögðu bókina og stendur til að hefja lestur á henni núna í kvöld - klára hana sjálfsagt í kvöld ef ég verð ekki truflaður.

Læt ykkur svo vita hvernig mér fannst.

Ben

ps. þess má geta að bókin var á einhverju tilboði í Eymundsson á 2900 minnir mig.