Ég er bókasafnari af guðs náð og einhvern tíma á mínum yngri árum hóf ég að safna bókunum um ísfólkið. Málið er hins vegar það að mig vantar 4 þeirra og mér finnst alveg ómögulegt að eiga safnið án þess að að eiga það ALLT. Ef einhver á þessar bækur og tímir að láta þær get ég látið ýmsar bækur aðrar eftir Margit Sandemo í staðinn.

Bækur sem mig vantar:

Nr. 3 - Hyldýpið
32 - Hungur
39 - Raddirnar
45 - Böðullinn


Á auka bækur um ísfólkið sem ég get látið í staðinn:

Nr.29 - Ástir Lúcífers
47 - Er einhver þarna úti


Svo á ég bækur úr Ríki ljóssins seríunni, sem er einnig eftir Margit Sandemo, sem ég get einnig látið í staðinn:

Nr. 2 - Móri og Ísfólkið
4 - Maðurinn úr þokudalnum
8 - Skelfing
10 - Náttsvartar rósir
11 - Umskiptingar


Ef þið viljið annað hvort skipta við mig eða gefa mér bækurnar ENDILEGA hafið samband við mig, annað hvort með því að svara þessari grein eða með því að senda mér póst á divaa@hugi.is.

Takk fyrir!