Hæ, ég var að velta fyrir mér hvort að einhver hérna eigi bækurnar um Beverly Gray eftir rithöfundinn Clair Blank? Veit ekki alveg hvort að þær voru allar gefnar út hérna á Íslandi, en það voru skrifaðar 25 bækur um hana. Á ekki fyrstu bókin, bara 10 næstu eftir fyrstu, hef samt lesið fyrstu bókina. En langar rosalega að eiga allar þessar bækur, þannig að ef einhver á þær og vill selja eða veit um einhverja bókabúð sem selur gamlar bækur, þá megiði endilega láta mig vita! :)