Ég er núna búinn að lesa Eragon tvisvar og Eldest tvisvar.

Hvað fannst ykkur um það að Murtagh var orðinn Dragon Rider? Þeir eru bræður og fannst mér svona frekar spes að þeir eru núna báðir Riders.. minnir mig frekar á Star Wars, þar sem öflugasta fjölskyldan í “sex logíunni” var Skywalker fjölskyldan (svona sirka..).

Hvað fannst ykkur líka um kraftana hans? Eragon orðinn “Half-Elf” eiginlega, búinn að læra frá einum elsta Ridernum og Brom, vitaskuld, Saphira orðin mun eldri en dreki Murtaghs, en samt vann Murtagh hann í göldrum og skylmingum. Var það kannski bara vegna þess að Eragon var orðinn þreyttur eftir öll sín Wards yfir sjálfum sér, Saphiru og þeim?

Hvert er ykkar álit?
Ég held að hann hefði rústað Murtagh ef þetta hefði verið í byrjun bardagans.
Kveðja, Nolthaz.