Ég ætla að biðja þá sem ekki hafa lesið bókina að lesa ekki lengra nema þeir vilji láta skemma fyrir sér aðalplottið í bókinni!

































Fyrir þá sem hafa lesið bókina, þá hef ég eina spurningu:

Finnst engum öðrum endirinn alveg ótrúlega asnalegur?
Ég fékk þessa bók í skóinn og sökk alveg í hana, var bara að klára hana rétt áðan. Málið er að mér fannst hún ótrúlega vel skrifuð, mjög áhrifarík og spennandi. Það eru ótrúlega miklar lýsingar á öllu í bókinni, sem er bara fínt, ekkert yfirþyrmandi. Svo allt í einu þegar eru svona sex blaðsíður eða eitthvað eftir og það á eftir að taka stærstu ákvörðunina lendir aðalpersónan bara í bílsysi og deyr!
Mér fannst þessi bók alveg frábær, en endirinn eyðilagði hana eiginlega. Þetta hefði alveg verið í lagi ef þetta hefði ekki gerst svona svakalega snögglega miðað við fyrri lýsingar í bókinni, maður getur eiginlega ekki meðtekið þetta almennilega. Það er eins og höfundirinn hafi vandað sig svakalega við gerð bókarinnar, en svo á síðasta kaflanum áttað sig á að hann væri að renna út á tíma og bara rumpað einhverju af :S
Eða hvað finnst ykkur?