Könnuninn:
finnst þér að það ætti að koma lord of the rings 4 bókin

Í fyrsta lagi er þetta mjög illa uppsett könnun, og hvet ég alla að setja svona kannanir betur upp. Það vantar alla stóru stafi, spurningarmerki og síðan er hún sett upp frekar ruglingslega.

En það sem ég ætlaði að tala um, er…það er algjörlega út í hött að það ætti að koma önnur Lord of The Rings bók. Höfundur bókanna, John Ronald Reuel Tolkein, er látinn. Það væri óvirðing fyrir bækurnar að láta einhvern annan skrifa framhald, auk þess að í bók nr þrú var endirinn. Það er ekki gert ráð fyrir endi.

Varð bara að koma þessu frá mér :)
An eye for an eye makes the whole world blind