Ok, ég veit að ég á að skrifa mínar ritgerðir sjálf og svona en málið er að ég á að skila ritgerð á morgun úr Mýrinni eftir Arnald Indriðason og ég er ekki einu sinni búin með bókina.
Ég er búin að vera að læra undir próf eins og brjálæðingur síðustu daga og við fengum ekki nema viku fyrirvara. Allan daginn í dag þarf ég að nota til að læra undir próf og hef því engann tíma til að klára bókina nér skrifa ritgerðina.
Ef einhver vildi vera svo æðislegur að hjálpa mér þá væri það frábært, því ég vil alls ekki falla í íslensku á síðasta árinu:/

Fyrirfram þakkir..
-Arkano