Ég er nú ekki mikið inni í bókmenntaheiminum en mér finnst vera mjög lítið minnst á lélegar bækur eða illa skrifaðar bækur í blöðum eða bara á götunni. Allavega veit ég ekki um eina einustu bók sem í almennu áliti gæti talist vera léleg. Getur einhver nefnt mér virkilega lélega bók? Annaðhvort af eigin reynslu eða bók sem telst einfaldlega vera léleg t.d. eins og kvikmyndin Godzilla.