Mikið hefur verið beðið um Fantasy áhugamál á Huga. Ég hef nú ekki hingað til verið neitt á móti fleiri áhugamálum (meiri möguleiki til að afla sér stiga :D) en ég verð að viðurkenna að ég er ekkert yfir mig hrifinn af þeirri hugmynd. Ástæðan er sú að þá er líklegt að þetta áhugamál verði frekar dauflegt… Svo virðist nefnilega sem Fantasy áhangendur hafi hér fundið vænlegan samastað og það er ekkert nema frábært! Höldum bókum lifandi -stofnum ekki Fantasy áhugamál! :)