Eins og flestir sem hafa lesið Ríki Ljóssins bækurnar vita stoppaði bók 13 á þó nokkuð spennandi part og urðu fyrir þeim vonbrigðum að Ríki Ljóssins 14 kom ekki út á íslensku -_-°

Ég fór á bókasafn Hafnarfjarðar og þar eru til bækur 14-20 á norsku (bömmer fyrir þá sem ekki kunna norsku! -_-°). Ég bara skellti mér í það að taka út bækur 14-17 og er nú að lesa bók 14. Þetta er þó nokkuð líkt dönsku og reyndar er ég að styðjast við danska orðabók mér til hjálpar, en samt eru sum orð ekki alveg eins stafsett svo að maður þarf að fykra sig áfram til að finna rétta merkingu….
Ég hef aldrei lesið norsku áður en þetta gengur bara vel hjá mér…. ég er jafnvel að þýða bókina fyrir vinkonur mínar ^_^ …. ekki það að ég sé einhver snillingur! @_@ ég myndi segja langt því frá! En ég vildi bara koma því á framfæri fyrir þá sem vilja lesa bók 14 að þeir geti fengið bókina á bókasafni Hafnarfjarðar (en ekki eins og er því að ég er með hana ^_^)
Dancingdoe is over and out °-(^_^)-°