HAlló, heyriði ég var inni á Harry Potter síðu áðan, og þar var viðtal við krakkana. Og hérna, Rupert (Ron) var spurður um hvort það ætti eitthvað eftir að gerast á milli Ron og Hermione. Og vitiði að hann sagði já það á eftir að koma að því að þau losi um ástarblossann sem er á milli þeirra! HeHe… Sko þetta var það sem hann hélt, hann og Dan halda að Ron og Hermione séu yfir sig ástfangin, og ég var að velta því fyrir mér hvort það sé satt… E

Þegar það var spurt J.K. Rowling að því hvorum Hermione ætti eftir að enda með, þá sagði hún: ,,Hafið þið ekki fengið nægar vísbendingar!" En það er eitt vandamál, það fer alveg eftir því hvernig maður lítur á það, sko hjá Ron og Hermione er það þessi sífeldu rifrildi og hvað þau þola hvort annað stundum ekki… OG hjá Hermione og Harry, þá er það þögult og þau sýna hvað þeim þykir vænt um hvort annað…

En það er eiginlega ekki hægt að svara því hverjum Hermione á eftir að lenda með Ron eða Harry… Eða hvorugum. Það fer alveg eftir því hvernig á er litið.

Takk fyrir að lesa þetta það væri fínt að fá ykkar álit á þessum þríhyrning…
Kv. MioneH