Þetta er saga sem segir frá frumbyggjum í Ameríku. Sagan gerist á tímanum þegar Ameríka er að byggjast upp af hvítum mönnum.
Þessi saga segir frá samskiptum tveggja manna, vináttu þeirra og um leið erfiðleikum vegna ólíks uppruna. Í bókinni er vel sínd spennuna sem ríkti milli hvítra manna og frumbyggja á þessum tíma. Þarna er einnig einstök frásögn af landnámi og viðskiptum hvíta mannsins við frumbyggjana.

Þetta er þekt bók eftir James Fenimore Cooper er 125 bls og er fyrir alla eldri en 12 ára. Þó að bókin sé nokkuð þung lesningar tekur ekki mjög langan tíma að komast á bólakaf í hana. Þessi bók er eftilvill ekki á bókamörkuðum núna, en ef þú hefur áhuga þá mundi ég drífa mig í bókasafn þar sem hún er auðfundinn.