Hæhæ. Ég veit að mörg ykkar hafið lesið þær mögnuðu bækur um Ísfólkið. Og ég veit að það eru margir sem hreinlega dýrka þessar bækur! Ég er meðal þeirra.
Þannig hvernig væri það að fá áhugamál um Ísfólkið?

Ég hef heyrt hjá sumum, sem hafa augljóslega ekki lesið þessar bækur, um að senda bara greinar um Ísfólkið inn á bækur eða bara fá kork. En það er ekki nóg! Þessar bækur eru svo margar og svo fullar af spennu og það er svo margt hægt að tala um!! Þessar bækur eru 47-48! Það eru svo margar persónur í þessu, svo margar sögur, væri hægt að búa til fanfic og svo væri hægt að hafa korka um Galdrameistarann og Í ríki ljóssins.

Ég veit að Ísfólkið er kannski ekki alveg eins frægar og Harry Potter, en það er líka af því að Ísfólkið er ekki beinlínis fyrir 9 ára krakka, en Ísfólkið er samt vinsælar bækur.

Fyrir svona 1-2 mánuðum byrjaði ég að safna undirskriftalista fyrir Ísfólksáhugamál og auglýsti það og það komu 64 á listann fyrstu tvær vikurnar, svo hætti ég að auglýsa og það eru ekki búnir að komna fleiri síðan ég hætti að auglýsa.
Ég er búin að senda vefstjóranum póst og biðja um þetta áhugamál en hann er ekki búinn að svara mér, þannig ég ætla að finna fleiri sem fíla Ísfólkið til að koma á undirskriftalistann og síðan biðja hann aftur um þetta áhugamál.
Þið getið fundið undirskriftalistann á heimasíðunni minni og í upplýsingunum mínum.

Ef að þetta áhugamál komi (sem ég vona innilega) þá vona ég að ég verði admin á því af því að ég dýrka Ísfólkið og myndi sinna vel um áhugamálið.

Í Von um að fleiri koma á listann.


Svandís.
Music.. my escape from reality.