Sæl og blessuð.

Ég vona að einhver hérna getur hjálpað mér. Málið er að ég á NÆSTUM allt safnið af Ísfólkinu en eins og gefur að skilja þá vantar mig nokkrar bækur t.d. nr. 2 og 3 og fleiri. Ef einhver hérna vill endilega losa sig við einhverjar ísfólksbækur þá skal ég endilega taka við þeim. Einnig er ég til í að kaupa þær á sanngjörnu verði. Ég veit ekki út afhverju en ég á líka sjálf tvö eintök af nokkrum bókum í seríunni svo ég get einnig skipt/gefið.
Með von um góð og falleg viðbrögð,

Neeve

p.s. mér er alveg sama þó einhverjum finnist Ísfólkið vera leiðinlegar bækur - fólk má halda þeim skoðunum fyrir sjálft sig.